Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Mér skilst að þeir hafi einnig átt samtal við Ancelotti"
Carlo Ancelotti.
Carlo Ancelotti.
Mynd: EPA
Gary Lineker, fyrrum landsliðsmaður Englands, segir að enska fótboltasambandið hafi rætt við Ítalann Carlo Ancelotti áður en Thomas Tuchel var ráðinn landsliðsþjálfari.

Tuchel var ráðinn landsliðsþjálfari í gær og fær hann það verkefni að stýra Englandi á HM 2026.

Lineker segir að enska fótboltasambandið hafi rætt við Pep Guardiola - eins og komið hefur fram - og einnig við Ancelotti.

„Það er staðfest að þeir ræddu við Guardiola í sumar, en mér skilst að þeir hafi einnig átt samtal við Ancelotti," segir Lineker.

Ancelotti er gríðarlega sigursæll stjóri en hann heldur í dag um stjórnartaumana hjá Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner