Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Anita Lind áfram í Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anita Lind Daníelsdóttir, lykilkona í liði Keflavíkur, hefur framlengt samning sinn við félagið út 2027.

Anita Lind er 25 ára og verið í stóru hlutverki hjá Keflvíkingum síðan 2016.

Hún hefur spilað 208 leiki og skorað 51 mark með liðinu.

Í sumar skoraði hún fjögur mörk í Bestu deildinni er liðið féll niður í Lengjudeildina, en hún hefur ákveðið að halda tryggð sína við Keflavík og framlengja samning sinn út 2027.

Anita á að baki 27 landsleiki og 4 mörk fyrir yngri landslið Íslands.
Athugasemdir
banner