Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
   fös 18. október 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuðningsmenn West Brom minnast Liam Payne
Liam Payne.
Liam Payne.
Mynd: Getty Images
Tónlistarmaðurinn Liam Payne lést af slysförum fyrr í þessari viku. Payne, sem var hluti af strákahljómsveitinni One Direction, féll af svölum á þriðju hæð hótels sem hann dvaldi á í Argentínu.

Samkvæmt fréttum þar í landi var hann í ójafnvægi og lét öllum illum látum. Hann hafði glímt við alkóhólisma og önnur vandamál í sínu einkalífi.

Payne var mikill stuðningsmaður West Brom á Englandi en stuðningsmannaklúbbur félagsins minnist hans með hlýju á samfélagsmiðlum.

„Við erum miður okkar að heyra af andláti Liam Payne, sem var mikill aðdáandi West Bromwich Albion. Þetta er hræðilegur missir fyrir fjölskyldu okkar. Hugur okkar og bænir eru hjá fjölskyldu hans og vinum á þessum erfiðu tímum," segir í yfirlýsingu frá stuðningsmannaklúbbi West Brom.

Payne var mikill stuðningsmaður West Brom frá unga aldri og fór á leiki hvenær sem hann gat.
Athugasemdir
banner