Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 21:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Beckham hrifinn af Alexander-Arnold - „Sé sjálfan mig í honum"
Mynd: Getty Images

David Beckham, fyrrum leikmaður Man Utd og Real Madrid sem dæmi, er mjög hrifinn af Trent Alexander-Arnold leikmanni Liverpool.


„Hann er mjög svipaður og ég að því leiti hvernig hann sendir boltann, fyrirgjafirnar og sendingarnar. Hann er stórkostlegur leikmaður. Þegar ég horfi á hann þá sé ég mig í honum, hvernig hann sér leikinn, hann er með sendingar sem öðrum myndi aldrei detta í hug að framkvæma," sagði Beckham.

Samningur Alexander-Arnold hjá Liverpool rennur út næsta sumar en hann hefur verið orðaður í burtu frá félaginu.

Það er einmitt Real Madrid nefnt til sögunnar. The Athletic greindi frá því að hann væri efstur á óskalista spænska félagsins.


Athugasemdir
banner