Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fös 18. október 2024 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rifti við Fenerbahce - Mourinho vildi hann ekki
Rock on
Rock on
Mynd: Getty Images

Ryan Kent hefur náð samkomulagi við Fenerbahce um riftun á samningi hans.


Þessi 27 ára gamli enski vængmaður gekk til liðs við Fenerbahce fyrir einu og hálfu ári síðan eftir að samningur hans við Rangers rann út. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning.

Hann lék 19 leiki fyrir félagið. Talað var um áhuga á honum í janúar en það var óánægja innan tyrkneska félagsins að hann neitaði að fara til Lazio.

Mourinho tjáði honum að hann myndi aldrei spila fyrir sig á meðan sá portúgalski væri stjóri liðsins.


Athugasemdir
banner
banner