Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
   fös 18. október 2024 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hefur Man Utd aftur betur í baráttu gegn Real Madrid?
Alphonso Davies.
Alphonso Davies.
Mynd: EPA
Alphonso Davies, bakvörður Bayern München, er að verða samningslaus eftir tímabilið.

Davies er eftirsóttur en hann hefur verið orðaður mikið við bæði Barcelona og Real Madrid.

Bayern telur að launakröfur hans séu of háar og eru viðræður ekki í gangi á milli hans og Bayern þessa stundina.

Þýski blaðamaðurinn Christian Falk segir að Davies dreymi um Real Madrid en ef Manchester United sé tilbúið að koma til móts við launakröfur hans, þá sé hann tilbúinn að hlusta á þeirra tilboð.

Man Utd hafði betur gegn Real Madrid í baráttunni um miðvörðinn Leny Yoro síðastliðið sumar og spurning hvort það gerist aftur með Davies næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner