Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Framtíð Neuer óljós - „Ég veit það ekki“
Mynd: Getty Images
Óvíst er hvort Manuel Neuer, markvörður Bayern München, verði áfram í herbúðum félagsins eftir tímabilið.

Neuer, sem er 38 ára gamall, verður samningslaus eftir tímabilið, en hann hefur ekki í hyggju að leggja hanskana á hilluna.

Hann lagði landsliðshanskana á hilluna eftir Evrópumótið í sumar en telur sig enn eiga eitthvað inni í félagsliðafótbolta.

„Ég veit ekki hvort hann muni framlengja, en allir hjá félaginu vita hversu mikilvægur hann er fyrir Bayern. Það er eiginlega magnað hvernig hann hefur snúið aftur í Pep Guardiola-leikstílinn,“ sagði Rummenigge.

Neuer hefur verið á mála hjá Bayern síðan 2011 og verið fyrirliði liðsins síðan 2017.
Athugasemdir
banner
banner