Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Höfnuðu mettilboði í Yamal í sumar
Mynd: EPA

Lamine Yamal er einn mest spennandi leikmaður heims í dag en PSG reyndi allt til að fá hann frá Barcelona síðasta sumar.


Juan Laporta, forseti Barcelona, staðfesti í viðtali hjá Barca One að félagið hafi fengið 250 milljón evra tilboð í hann í sumar en hann var mikið orðaður við PSG.

„Hann er vinsælasti leikmaður í heimi núna. Við vildum ekki selja, við vildum halda liðinu sem við héldum að gæti gefið miklu meira af sér en það gerði. Við höfðum ekki rangt fyrir okkur, Flick er að ná miklu út úr liðinu," sagði Laporta.

„Gundogan fór og Olmo kom. Leikmennirnir eru að standa sig mun betur en í fyrra. Raphinha og Lewandowski hafa breytt hugarfarinu. Sá sem vill fara skal koma og koma með hugmynd af verði á sér og við munum alltaf skoða það. Eins og Johan (Cruyff) sagði, sá sem spilar hérna verður að vilja vera hérna."


Athugasemdir
banner
banner
banner