Daði Kárason, miðvörður Víkings Ólafsvíkur, er samkvæmt heimildum Fótbolta undir smásjá liða í Bestu deildinni.
Hann er þessa dagana að æfa með Íslandsmeisturum Víkinga.
Hann er þessa dagana að æfa með Íslandsmeisturum Víkinga.
Daði er varnarmaður sem er fæddur árið 2001. Hann er uppalinn hjá Val en steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með venslafélaginu KH.
Hann færði sig um set í fyrra og gekk þá í raðir Ólsara. Hann spilaði 21 leik með liðinu í 2. deild í fyrra og skoraði eitt mark. Í sumar lék hann einnig 21 leik í 2. deildinni og fékk nokkur atkvæði fyrir lið ársins.
Víkingar eru að skoða leikmenn fyrir næsta tímabil en liðið er að berjast við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn.
Athugasemdir