Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
   fös 18. október 2024 13:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vandræði inn á miðsvæðinu hjá Man Utd
Kobbie Mainoo.
Kobbie Mainoo.
Mynd: Getty Images
Það er líklegt að Kobbie Mainoo muni missa af allavega næstu sjö leikjum Manchester United. The Times segir frá en það eru vandræði á miðsvæðinu hjá United.

Mainoo meiddist í leiknum gegn Aston Villa fyrir landsleikjahlé og kemur til með að missa af sjö leikjum.

United verður mögulega bara með tvo djúpa miðjumenn klára í leikinn gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Auk Mainoo, þá er Manuel Ugarte að glíma við meiðsli og Mason Mount er tæpur. Casemiro og Christian Eriksen koma því til með að þurfa að spila.

Það verður áhugavert að sjá hvernig Erik ten Hag, stjóri United, stillir liðinu upp á morgun.
Athugasemdir
banner
banner