Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótboltamenn minnast Liam Payne
Jack Grealish.
Jack Grealish.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Jack Grealish og James Maddison hafa minnst söngvarans Liam Payne á samfélagsmiðlum.

Payne, sem var hluti af strákahljómsveitinni One Direction, féll af svölum á þriðju hæð hótels sem hann dvaldi á í Argentínu. Samkvæmt fréttum þar í landi var hann í ójafnvægi og lét öllum illum látum. Hann hafði glímt við alkóhólisma og önnur vandamál í sínu einkalífi.

„Æii, nei. Þetta er svo sorglegt," skrifaði Grealish á samfélagsmiðlum við mynd af Payne.

„Hvíl í friði Liam Payne. Við verðum að fara að koma betur fram við hvort annað í þessum heimi."

Payne var mikill aðdáandi Grealish en hann reyndi að líkja eftir honum í fótboltaþætti í Bretlandi í fyrra.

Maddison, sem spilar með Tottenham, minntist söngvarans einnig. „Hvíl í friði Liam Payne. Hugsanir mínar eru með fjölskyldu hans og vinum á þessum erfiðum tímum."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner