Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
banner
   fös 18. október 2024 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Næstur á listanum á eftir Alexander-Arnold
Jeremie Frimpong.
Jeremie Frimpong.
Mynd: Getty Images
Real Madrid er með alla anga úti við að reyna að sækja Trent Alexander-Arnold frá Liverpool.

En hvað ef það gengur ekki upp?

Þá er Hollendingurinn Jeremie Frimpong næstur á lista. Þetta herma heimildir ESPN.

Dani Carvajal er meiddur út tímabilið og hann er farinn að eldast. Því þarf Real Madrid að finna nýjan hægri bakvörð.

Frimpong hefur leikið afar vel með Þýskalandsmeisturum Bayer Leverkusen og með hollenska landsliðinu. Hann er aðeins 23 ára gamall og er leikmaður sem Hollendingar binda miklar vonir við fyrir framtíðina.
Athugasemdir
banner
banner