Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
   fös 18. október 2024 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besti leikmaður sinnar kynslóðar en það rættist ekkert úr ferli hans
Ravel Morrison.
Ravel Morrison.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba segir að Ravel Morrison, fyrrum liðsfélagi sinn hjá Manchester United, hafi verið besti leikmaður sinnar kynslóðar.

Morrison er 31 árs gamall miðjumaður sem þótti eitt sinn einn efnilegasti fótboltamaður heims.

Hann var eitt sinn í akademíu Manchester United og þá var mikið talað um hæfileika hans. Miðað við það sem hefur verið sagt um hann, þá hefði Morrison getað orðið einn besti fótboltamaður í heimi en það hefur ekki mikið ræst úr ferli hans - allavega ekki miðað við það sem var sagt um hann á sínum tíma.

„Ravel er besti leikmaður okkar kynslóðar," sagði Pogba í nýlegu viðtali.

„Það er enginn vafi á því. Ég sá það sem Neymar var að gera fyrir Santos. Ravel var að gera það sama fyrir okkur."

Þegar hann var 14 ára gamall sagði Sir Alex Ferguson, þáverandi stjóri Manchester United, að Morrison væri einn hæfileikaríkasti leikmaður sem hann hefði séð á því aldursbili. En Morrison spilaði bara þrjá aðalliðsleiki með Man Utd áður en hann fór til West Ham árið 2012.

Sir Alex sagði að Morrison hefði verið betri en Wayne Rooney, Rio Ferdinand og Ryan Giggs sem ungur leikmaður, en hausinn var ekki rétt skrúfaður á.

„Rav var með mestu hæfileikana. En við þurfum að taka ábyrgð og hann veit það. Hann veit alveg að ef hann fengi tækifæri til að gera þetta allt aftur, þá myndi hann gera það," sagði Pogba en hann lék með Morrison í unglingaliðum United.
Athugasemdir
banner
banner
banner