Chelsea leggur aukna áherslu á að fá Mainoo - Milan vill Mitchell - Phillips gæti snúið aftur til Leeds
   fös 20. desember 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Stórleikir fyrir jól
Enska úrvalsdeildin er í fullu fjöri um helgina þar sem jólatörnin fræga fer í gang.

Það er mikil eftirvænting fyrir leikjum helgarinnar þar sem fimm fara fram á morgun, laugardag, og fimm á sunnudag.

Veislan hefst í hádeginu á morgun þegar Aston Villa fær Englandsmeistara Manchester City í heimsókn í hörkuslag.

Newcastle United, Nottingham Forest og Brighton eiga svo erfiða útileiki áður en Arsenal heimsækir Crystal Palace. Það verður í annað sinn sem liðin mætast á fjórum dögum eftir að Arsenal hafði betur gegn Palace í deildabikarnum í vikunni.

Manchester United tekur á móti Bournemouth í spennandi slag á sunnudaginn á sama tíma og Chelsea, sem er í öðru sæti deildarinnar, heimsækir Everton.

Tottenham og Liverpool eigast að lokum við í stórleik helgarinnar seinni hluta sunnudags, sem verður síðasti leikurinn fyrir jól.

Laugardagur:
12:30 Aston Villa - Man City
15:00 Brentford - Nott. Forest
15:00 Ipswich Town - Newcastle
15:00 West Ham - Brighton
17:30 Crystal Palace - Arsenal

Sunnudagur:
14:00 Everton - Chelsea
14:00 Fulham - Southampton
14:00 Leicester - Wolves
14:00 Man Utd - Bournemouth
16:30 Tottenham - Liverpool
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 29 21 7 1 69 27 +42 70
2 Arsenal 28 15 10 3 52 24 +28 55
3 Nott. Forest 28 15 6 7 45 33 +12 51
4 Chelsea 28 14 7 7 53 36 +17 49
5 Man City 28 14 5 9 53 38 +15 47
6 Newcastle 28 14 5 9 47 38 +9 47
7 Brighton 28 12 10 6 46 40 +6 46
8 Aston Villa 29 12 9 8 41 45 -4 45
9 Bournemouth 28 12 8 8 47 34 +13 44
10 Fulham 28 11 9 8 41 38 +3 42
11 Crystal Palace 28 10 9 9 36 33 +3 39
12 Brentford 28 11 5 12 48 44 +4 38
13 Tottenham 28 10 4 14 55 41 +14 34
14 Man Utd 28 9 7 12 34 40 -6 34
15 Everton 28 7 12 9 31 35 -4 33
16 West Ham 28 9 6 13 32 48 -16 33
17 Wolves 28 6 5 17 38 57 -19 23
18 Ipswich Town 28 3 8 17 26 58 -32 17
19 Leicester 28 4 5 19 25 62 -37 17
20 Southampton 28 2 3 23 20 68 -48 9
Athugasemdir
banner
banner
banner