Chelsea leggur aukna áherslu á að fá Mainoo - Milan vill Mitchell - Phillips gæti snúið aftur til Leeds
   lau 21. desember 2024 15:55
Hafliði Breiðfjörð
Spánn: Spútniklið Mallorca heldur áfram að gera vel
Cyle Larin fagnar markinu sínu í dag.
Cyle Larin fagnar markinu sínu í dag.
Mynd: EPA
Getafe 0 - 1 Mallorca
0-1 Cyle Larin ('53 , víti)

Það gengur heldur betur vel hjá Mallorca í spænsku deildinni en í dag vann liðið 0-1 útisigur á Getafe í fyrsta leik dagsins í La Liga.

Cyle Larin átti stórleik hjá Mallorca liðinu og skoraði eina markið. Hann byrjaði tímabilið illa en hefur verið að finna sig upp á síðkastið og skilað mjög góðum leikjum.

Markið skoraði hann úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur í seinni hálfleiknum og ljóst að Mallorca sem er í 5. sæti deildarinnar stefnir á Evrópukeppni.

Mallorca varð þarna annað gestaliðið til að vinna á Coliseum Alfonso Perez leikvangnum á tímabilinu, aðeins Girona hafði gert það sama.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 27 17 6 4 57 26 +31 57
2 Barcelona 26 18 3 5 71 25 +46 57
3 Atletico Madrid 27 16 8 3 44 18 +26 56
4 Athletic 27 13 10 4 45 24 +21 49
5 Villarreal 26 12 8 6 48 36 +12 44
6 Betis 27 11 8 8 35 33 +2 41
7 Mallorca 27 10 7 10 26 33 -7 37
8 Vallecano 27 9 9 9 29 29 0 36
9 Sevilla 27 9 9 9 32 36 -4 36
10 Celta 27 10 6 11 40 41 -1 36
11 Real Sociedad 27 10 4 13 23 28 -5 34
12 Osasuna 26 7 12 7 32 37 -5 33
13 Getafe 27 8 9 10 23 22 +1 33
14 Girona 27 9 6 12 35 40 -5 33
15 Espanyol 26 7 7 12 25 37 -12 28
16 Valencia 27 6 9 12 30 45 -15 27
17 Leganes 27 6 9 12 24 40 -16 27
18 Alaves 27 6 8 13 30 40 -10 26
19 Las Palmas 27 6 6 15 30 45 -15 24
20 Valladolid 27 4 4 19 18 62 -44 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner