Rashford gerir allt til að komast til Barcelona - Lecce hafnar tilboði Man Utd - Duran til Real Madrid?
   lau 25. janúar 2025 21:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Lukaku með sigurmarkið gegn Juventus
Mynd: Getty Images
Topplið Napoli vann stórleikinn gegn Juventus í ítölsku deildinni í kvöld. Þetta var fyrsta tap jafntefliskóngana í Juventus í deildinni þetta tímabilið.

Randal Kolo Muani var í byrjunarliði Juventus í fyrsta sinn eftir komuna frá PSG á láni fyrir helgi. Hann kom liðinu yfir undir lok fyrri hálfleiks.

Frank Anguissa jafnaði metin eftir rúmlega tíu mínútna leik í seinni hálfleik.

Napoli fékk síðan vítaspyrnu þegar brotið var á Scott McTominay. Romelu Lukaku steig á punktinn og skoraði og tryggði toppliðinu sigurinn.

Þá gerðu Empoli og Bologna jafntefli í síðasta leik dagsins.

Empoli 1 - 1 Bologna
1-0 Lorenzo Colombo ('24 )
1-1 Benjamin Dominguez ('44 )

Napoli 2 - 1 Juventus
0-1 Randal Kolo Muani ('43 )
1-1 Andre Zambo Anguissa ('57 )
2-1 Romelu Lukaku ('69 , víti)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Napoli 22 17 2 3 37 15 +22 53
2 Inter 21 15 5 1 55 18 +37 50
3 Atalanta 22 14 4 4 48 25 +23 46
4 Lazio 22 12 3 7 38 30 +8 39
5 Juventus 22 8 13 1 35 19 +16 37
6 Fiorentina 21 10 6 5 35 22 +13 36
7 Milan 21 9 7 5 32 23 +9 34
8 Bologna 21 8 10 3 33 27 +6 34
9 Roma 22 8 6 8 33 28 +5 30
10 Torino 22 6 8 8 23 26 -3 26
11 Udinese 22 7 5 10 25 34 -9 26
12 Genoa 21 5 8 8 18 30 -12 23
13 Como 22 5 7 10 27 36 -9 22
14 Empoli 22 4 9 9 21 29 -8 21
15 Cagliari 22 5 6 11 23 36 -13 21
16 Parma 22 4 8 10 28 39 -11 20
17 Lecce 22 5 5 12 15 40 -25 20
18 Verona 21 6 1 14 24 47 -23 19
19 Venezia 21 3 6 12 19 34 -15 15
20 Monza 21 2 7 12 20 31 -11 13
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner