Rashford gerir allt til að komast til Barcelona - Lecce hafnar tilboði Man Utd - Duran til Real Madrid?
   lau 25. janúar 2025 21:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Reykjavíkurmótið: Gylfi skoraði og Valur mætir KR í úrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 1-3 Valur
0-1 Gylfi Þór Sigurðsson ('11 )
1-1 Guðmar Gauti Sævarsson ('53 )
1-2 Adrían Nana Boateng ('70 )
1-3 Jónatan Ingi Jónsson ('76 )

Valur er komið áfram í úrslit Reykjavíkurmótsins eftir sigur á Fylki í kvöld. Fylkir þurfti að vinna leikinn með tveimur mörkum til að eiga möguleika á að komast áfram.

Gylfi Þór Sigurðsson sá til þess að Valur var með 1-0 forystu í hálfleik. Guðmar Gauti Sævarsson jafnaði metin fyrir Fylki en Adrían Nana Boateng, fæddur árið 2005, kom Val aftur yfir í öðrum leik sínum með liðinu á mótinu.

Það var svo Jónatan Ingi Jónsson sem innsiglaði sigurinn sex mínútum síðar.

Valur mætir KR á fimmtudagskvöldið í úrslitum.
Reykjavíkurmót karla - B-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
Athugasemdir
banner
banner
banner