Fótboltafréttamaðurinn vinsæli Fabrizio Romano er búinn að setja „here we go!" stimpilinn sinn fræga á félagaskipti spænska framherjans Marc Guiu til Chelsea.
Chelsea kaupir Guiu frá Barcelona fyrir svo lítið sem 6 milljónir evra. Enska stórveldið virkjar þar með riftunarákvæði í samningi Guiu við Barca.
Guiu er 18 ára framherji sem hefur verið mikilvægur hlekkur í varaliði Barcelona, auk þess að hafa staðið sig vel á stóra sviðinu þegar Barca þurfti á honum að halda. Hann á tvö mörk í sjö keppnisleikjum með meistaraflokki en skiptir núna yfir til Chelsea.
Hann fær langtímasamning hjá Chelsea og verður gengið frá félagsskiptunum síðar í vikunni.
???????? Marc Guiu to Chelsea, here we go! The club has just informed Barça on plan to trigger €6m release clause for 2006 born striker.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 25, 2024
Verbal agreement in place with Guiu’s agents, now proceeding with formal steps later this week.
Guiu expected to sign long term deal at #CFC. pic.twitter.com/Gygx1Gdafv
Athugasemdir