Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch var valinn besti maður vallarins er Liverpool sótti 2-1 útisigur gegn Wolves á Molineux-leikvanginum í dag.
Gravenberch hefur verið einn og ef ekki besti maður Liverpool í byrjun tímabils en hann hefur fundið sig í nýju hlutverki undir stjórn Arne Slot.
Hann fær 7 í einkunn og valinn maður leiksins af Sky Sports.
Nelson Semedo og Jean-Ricner Bellegarde voru slakastir í liði Wolves með 5.
Wolves: Johnstone (6), Semedo (5), Bueno (6), Toti (6), Ait-Nouri (7), Andre (7), J Gomes (6), Lemina (6), Bellegarde (5), Larsen (6), Cunha (6).
Varamenn: Forbs (7), Hwang (6), Doyle (6).
Liverpool: Alisson (7), Alexander-Arnold (6), Konate (6), Van Dijk (7), Robertson (7), Gravenberch (7), Mac Allister (6), Szoboszlai (6), Salah (6), Jota (7), Diaz (6).
Varamenn: Jones (6), Gakpo (6).
Athugasemdir