Gomes gríðarlega eftirsóttur - Liverpool og Man Utd með í kappinu um Guéhi - Liverpool missir af Gordon og skoðar Adeyemi - Barca vill losna við De...
banner
   lau 28. september 2024 18:03
Brynjar Ingi Erluson
Skelfilegur misskilningur hjá Konate og Alisson
Mynd: Getty Images
Liverpool fékk á sig heldur klaufalegt mark í leik liðsins gegn Wolves á Molineux-leikvanginum í Wolverhampton í dag.

Ibrahima Konate kom Liverpool yfir undir lok fyrri hálfleiks með góðum skalla, en hann gerði sig sekan um slæm mistök í þeim síðari er Rayan Ait-Nouri jafnaði.

Wolves tapaði boltanum í sókninni og skokkaði Konate á eftir boltanum inn í teignum. Hann hélt að Alisson ætlaði að sækja boltann, en Brasilíumaðurinn gerði það ekki og tókst því Jörgen Strand Larsen að stela boltanum og kom honum inn á miðjan teiginn sem endaði síðan hjá Ait Nouri og þaðan í netið.

Alisson og Konate rökræddu málin eftir markið en það stóð ekki lengi yfir. Mohamed Salah kom Liverpool aftur yfir með marki úr vítaspyrnu eftir að Nelson Semedo braut á Diogo Jota og er staðan því 2-1 þegar þetta er skrifað.

Sjáðu mistökin hjá Konate og Alisson
Athugasemdir
banner
banner