Gomes gríðarlega eftirsóttur - Liverpool og Man Utd með í kappinu um Guéhi - Liverpool missir af Gordon og skoðar Adeyemi - Barca vill losna við De...
banner
   lau 28. september 2024 19:36
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Tvö stórkostleg mörk í stórslag helgarinnar
Aleksandar Pavlovic skoraði frábær jöfnunarmark
Aleksandar Pavlovic skoraði frábær jöfnunarmark
Mynd: Getty Images
Bayern 1 - 1 Bayer
0-1 Robert Andrich ('31 )
1-1 Aleksandar Pavlovic ('39 )

Bayern München og Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen gerðu 1-1 jafntefli í stórslag helgarinnar í þýsku deildinni, en leikurinn fór fram á Allianz-Arena, heimavelli Bayern.

Michael Olise, sem hefur farið frábærlega af stað með Bayern síðan hann kom frá Crystal Palace, átti fyrsta hættulega færið þegar hann setti aukaspyrnu rétt yfir markið.

Miðjumaðurinn Robert Andrich kom Leverkusen í forystu á 31. mínútu með stórkostlegu skoti fyrir utan teig, neðst í vinstra hornið framhjá Manuel Neuer.

Jöfnunarmark Bayern var ekki síðra. Aleksandar Pavlovic fékk boltann fyrir utan teiginn, tók hann á bringuna áður hann skaut boltanum af miklum krafti í netið.

Bayern fékk mörg frábær færi til þess að skora sigurmarkið í síðari hálfleiknum. Serge Gnabry skaut í stöng og þá áttu þeir Olise og Joshua Kimmich fínustu færi, en fundu ekki leið til að koma boltanum í markið.

Lokatölur 1-1 á Allianz-Arena. Bayern er á toppnum með 13 stig en Leverkusen í 3. sæti með 10 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 5 4 1 0 17 4 +13 13
2 RB Leipzig 5 3 2 0 8 2 +6 11
3 Leverkusen 5 3 1 1 14 10 +4 10
4 Dortmund 5 3 1 1 11 9 +2 10
5 Heidenheim 5 3 0 2 10 7 +3 9
6 Eintracht Frankfurt 4 3 0 1 7 4 +3 9
7 Freiburg 5 3 0 2 8 7 +1 9
8 Stuttgart 5 2 2 1 14 10 +4 8
9 Union Berlin 5 2 2 1 4 3 +1 8
10 Gladbach 5 2 0 3 6 8 -2 6
11 Mainz 5 1 2 2 8 10 -2 5
12 Werder 4 1 2 1 4 8 -4 5
13 Wolfsburg 5 1 1 3 10 11 -1 4
14 St. Pauli 5 1 1 3 4 6 -2 4
15 Augsburg 5 1 1 3 7 14 -7 4
16 Hoffenheim 4 1 0 3 6 11 -5 3
17 Bochum 5 0 1 4 5 11 -6 1
18 Holstein Kiel 4 0 1 3 5 13 -8 1
Athugasemdir
banner
banner
banner