Jadon Philogene, kantmaður Hull City á Englandi, er í dag óvænt orðaður við stórveldið Barcelona.
Relevo á Spáni hefur heimildir fyrir því að Börsungar hafi sett sig í samband við Philogene.
Plan A hjá Börsungum er Nico Williams, kantmaður Athletic Bilbao og spænska landsliðsins, en hann kostar 58 milljónir evra. Barcelona er í fjárhagsvandræðum og ólíklegt að félaginu takist að fá Williams.
Philogene, sem er 22 ára, er möguleiki sem Barcelona er að skoða en hann vakti athygli í Championship-deildinni á nýliðnu tímabili.
Philogene er spennandi kantmaður sem á fjóra leiki að baki fyrir enska U21 landsliðið. Í þeim skoraði hann þrjú mörk en hann væri líklega talsvert ódýrari kostur en Williams.
Athugasemdir