Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Göteborg sem lagði Norrköping að velli í æfingaleik í dag.
Gautaborg vann leikinn 1-0 með marki á fyrstu mínútu, en Ísak Andri Sigurgeirsson og Arnór Ingvi Traustason byrjuðu á bekknum í liði Norrköping.
Vålerenga er þá komið í 8-liða úrslit norska kvennabikarsins eftir góðan sigur á útivelli gegn Start.
Sædís Rún Heiðarsdóttir er samningsbundin Vålerenga, sem er í harðri toppbaráttu í efstu deild norska boltans.
Goteborg 1 - 0 Norrkoping
Start W 2 - 4 Valerenga W
Athugasemdir