Það fóru afar spennandi leikir fram í dag til að ljúka keppni í D-riðli Evrópumótsins og litu óvænt úrslit dagsins ljós.
Deginum lauk þannig að Austurríki, Frakkland og Holland tryggðu sig öll áfram, þar sem Austurríki vann riðilinn þökk sé sigri í gríðarlega fjörugum fimm marka leik gegn Hollandi. Nú eru kvöldleikirnir eftir þar sem lokaumferð C-riðils fer fram.
Frakkland endar í öðru sæti eftir óvænt jafntefli við Pólland en Holland fer upp úr riðlinum sem lið með góðan árangur í þriðja sæti.
Mörkin sjö sem voru skoruð í leikjunum tveimur má sjá hér fyrir neðan.
Frakkar urðu að sætta sig við 2. sætið í D-riðli eftir 1-1 jafntefli við Pólverja. Bæði mörkin komu úr vítaspyrnum. ????????Mbappe var með grímuna og skoraði fyrsta EM-markið sitt og Lewandowski fékk tvær tilraunir til að skora úr sínu víti fyrir Pólverja???????? pic.twitter.com/xHEoGiqzi0
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) June 25, 2024
Alvöru dramatík þegar Austurríkismenn???????? tryggðu sér óvænt toppsætið í D-riðli með 3-2 sigri á Hollandi???????? Við sjáum mörkin?????? pic.twitter.com/BTNz5yG0UK
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) June 25, 2024
Athugasemdir