Belgíski miðjumaðurinn Amadou Onana er gríðarlega eftirsóttur og má hann yfirgefa Everton í sumar fyrir 50 milljónir punda.
Arsenal, Liverpool og Manchester United eru meðal ýmissa félaga sem hafa verið orðuð við kaup á Onana í sumar en nú greinir Sky í Þýskalandi frá því að FC Bayern hefur áhuga á leikmanninum.
Onana er 22 ára og spilaði 37 leiki fyrir Everton á síðustu leiktíð. Hann er varnarsinnaður miðjumaður að upplagi en er stór og sterkur og getur einnig verið hættulegur í sóknarleiknum.
Athugasemdir