Leik er lokið í E-riðli á EM en það var ótrúleg spenna fyrir leiki dagsins.
Öll liðin voru jöfn með þrjú stig eftir tvo fyrstu leikina. Belgar þurftu á sigri að halda gegn Úkraínu til að vinna riðilinn og forðast að mæta frökkum í 16 liða úrslitunum.
Þetta var ansi lokaður leikur en Romelu Lukaku komst í góða stöðu til að koma Belgum yfir en hitti boltann illa.
Úkraína var nálægt því að skora beint úr hornspyru en Koen Casteels markvörður Belga tókst að bjarga á síðustu stundu. Stuttu síðar komust Belgar í skyndisókn en fóru ansi illa með hana og Johan Bakayoko átti slakt skot.
Rúmenía stóð óvænt uppi sem sigurvegari í riðlinum eftir jafntefli gegn Slóvakíu.
Slóvakar komust yfir þegar Ondrej Duda skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Juraj Kucka.
Rúmenar fengu síðan umdeilda vítaspyrnu þegar brotið var á Ianis Hagi en brotið var fyrst utan teigs virtist vera en svo kom snerting innan teigs og VAR dæmdi víti.
Razvan Marin skoraði úr vítinu og tryggði liðinu toppsætið í riðlinum. Úkraína er úr leik. Belgía endar í 2. sæti og Slóvakía fer áfram úr 3. sæti.
Slovakia 1 - 1 Romania
1-0 Ondrej Duda ('24 )
1-1 Razvan Marin ('37 , víti)
Ukraine 0 - 0 Belgium
E-Riðill
1. Rúmenía 4 stig
2. Belgía 4 stig
3. Slóvakía 4 stig
4. Úkraína 4 stig
Svona fóru ????????Rúmenar að því að vinna E-riðil, 1-1 gegn ????????Slóvakíu og öll liðin enda jöfn að stigum en Rúmenar með bestu markatöluna?? Þrjú efstu fara áfram í 16-liða úrslit.
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) June 26, 2024
1?Rúmenía?
2?Belgía?
3?Slóvakía?
4?Úkraína? pic.twitter.com/q69Y0PZa9X