Skærasta stjarna ítalska landsliðsins á EM er á óskalista enskra félaga og áhugi Man Utd á leikmanni Barcelona minnkar
banner
   lau 29. júní 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Varamarkvörður Southampton framlengir til 2026
Mynd: EPA
Alex McCarthy, markvörður Southampton á Englandi, hefur framlengt samning sinn við félagið til 2026.

McCarthy, sem er 34 ára gamall, lék fimm leiki með Southampton er liðið komst upp í ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili.

Englendingurinn hefur verið Gavin Bazunu til halds og trausts og verður það áfram en hann hefur nú framlengt við félagið til næstu tveggja ára.

Markvörðurinn samdi við Southampton árið 2016 og hefur síðan þá 147 leiki í öllum keppnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner