Dagur Dan Þórhallsson, leikmaður Orlando City í MLS-deildinni, skoraði annað deildarmark sitt á tímabilinu í nótt í 4-2 tapi gegn New York City.
Bakvörðurinn hefur verið í góðu formi síðustu daga en hann lagði upp tvö mörk í síðasta leik gegn Chicago Fire og skoraði þá í leiknum í nótt.
Markið gerði hann með skalla á 72. mínútu eftir laglega fyrirgjöf frá vinstri vængnum.
Hann er því kominn með tvö mörk á þessu tímabili en gengi Orlando hefur þó ekki verið upp á marga fiska.
Liðið er í 10. sæti Austur-deildarinnar með 21 stig, einu sæti frá umspili þegar tuttugu umferðir eru búnar af mótinu.
DAGUR RISES HIGH ???? pic.twitter.com/Se0UFc06o9
— Orlando City SC (@OrlandoCitySC) June 29, 2024
Athugasemdir