Haukar og Völsungur unnu góða sigra í níundu umferð í 2. deild karla í kvöld.
Völsungur lagði Kormák/Hvöt að velli, 3-1, á Sjávarborgarvellinum.
Juan Hermida skoraði fyrir Völsung á 34. mínútu en Kristinn Bjarni Andrason svaraði aðeins fimm mínútum síðar.
Á síðustu tíu mínútum leiksins skoruðu gestirnir tvö mörk í gegnum Inigo Arruti og Steinþór Frey Þorsteinsson. Flottur sigur Völsungs sem er í 3. sæti með 16 stig en Kormákur/Hvöt með 11 stig í 7. sæti.
Haukar unnu annan leik sinn í röð er þeir lögðu Reyni Sandgerði að velli, 3-2, á Ásvöllum. Frosti Brynjólfsson skoraði tvö mörk í síðasta leik gegn Selfyssingum og lék það eftir í dag. Hann gerði sigurmark Hauka á 67. mínútu.
Sindri Þór Guðmundsson gerði bæði mörk Reynis í leiknum. Haukar eru í 5. sæti með 14 stig en Reynir með 5 stig í 11. sæti.
Kormákur/Hvöt 1 - 3 Völsungur
0-1 Juan Guardia Hermida ('34 )
1-1 Kristinn Bjarni Andrason ('39 )
1-2 Inigo Albizuri Arruti ('80 )
1-3 Steinþór Freyr Þorsteinsson ('87 )
Haukar 3 - 2 Reynir S.
0-1 Sindri Þór Guðmundsson ('10 )
1-1 Frosti Brynjólfsson ('28 )
1-2 Sindri Þór Guðmundsson ('55 )
2-2 Magnús Ingi Halldórsson ('66 )
3-2 Frosti Brynjólfsson ('67 )
2. deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Selfoss | 9 | 7 | 1 | 1 | 19 - 8 | +11 | 22 |
2. Víkingur Ó. | 9 | 5 | 4 | 0 | 23 - 11 | +12 | 19 |
3. Völsungur | 9 | 5 | 1 | 3 | 20 - 12 | +8 | 16 |
4. KFA | 9 | 5 | 1 | 3 | 21 - 17 | +4 | 16 |
5. Ægir | 9 | 4 | 3 | 2 | 15 - 10 | +5 | 15 |
6. Haukar | 9 | 4 | 2 | 3 | 14 - 14 | 0 | 14 |
7. Þróttur V. | 9 | 4 | 1 | 4 | 13 - 14 | -1 | 13 |
8. Kormákur/Hvöt | 9 | 3 | 2 | 4 | 9 - 11 | -2 | 11 |
9. Höttur/Huginn | 9 | 2 | 3 | 4 | 16 - 21 | -5 | 9 |
10. KFG | 9 | 2 | 1 | 6 | 12 - 15 | -3 | 7 |
11. Reynir S. | 9 | 1 | 2 | 6 | 11 - 25 | -14 | 5 |
12. KF | 9 | 1 | 1 | 7 | 8 - 23 | -15 | 4 |
Athugasemdir