Óliver Þorkelsson skoraði þrennu fyrir Hamar sem varð fyrsta liðið til að vinna Ými í 4. deildinni í sumar en leiknum lauk með 5-2 sigri Hvergerðinga.
Óliver skoraði tvö mörk á fyrstu níu mínútunum áður en Máni Snær Benediktsson gerði þriðja markið á 18, mínútu.
Heimamenn misstu mann af velli þegar Torfi Már Markússon fékk að líta rauða spjaldið á 50. mínútu og tuttugu mínútum síðar minnkaði Arian Ari Morina muninn.
Hamar svaraði því marki ágætlega. Máni gerði annað mark sitt á 73. mínútu áður en Óliver fullkomnaði þrennu sína með marki úr vítaspyrnu tíu mínútum síðar.
Hrannar Þór Eðvarsson klóraði í bakkann fyrir Ými á 86. mínútu en lengra komust gestirnir ekki.
Hamar opnar titilbaráttuna upp á gátt en liðið er í öðru sæti með 20 stig, tveimur á eftir toppliði Ýmis.
Árborg lagði þá Skallagrím að velli, 2-0, í Borgarnesi. Þorkell Þráinsson og Elvar Orri SIgurbjörnsson gerðu mörk Árborgar.
Árborg er í 3. sæti með 15 stig en Skallagrímur í 8. sæti með 6 stig.
Úrslit og markaskorarar:
Hamar 5 - 2 Ýmir
1-0 Óliver Þorkelsson ('5 )
2-0 Óliver Þorkelsson ('9 )
3-0 Máni Snær Benediktsson ('18 )
3-1 Arian Ari Morina ('70 )
4-1 Máni Snær Benediktsson ('73 )
5-1 Óliver Þorkelsson ('83 , Mark úr víti)
5-2 Hrannar Þór Eðvarðsson ('86 )
Rautt spjald: Torfi Már Markússon , Hamar ('50)
Skallagrímur 0 - 2 Árborg
0-1 Þorkell Þráinsson ('65 )
0-2 Elvar Orri Sigurbjörnsson ('81 )
4. deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Ýmir | 9 | 7 | 1 | 1 | 28 - 15 | +13 | 22 |
2. Hamar | 9 | 6 | 2 | 1 | 29 - 20 | +9 | 20 |
3. Árborg | 9 | 4 | 3 | 2 | 20 - 19 | +1 | 15 |
4. KH | 9 | 4 | 1 | 4 | 29 - 22 | +7 | 13 |
5. Tindastóll | 8 | 3 | 4 | 1 | 14 - 10 | +4 | 13 |
6. Kría | 9 | 4 | 1 | 4 | 23 - 23 | 0 | 13 |
7. KÁ | 9 | 3 | 3 | 3 | 22 - 16 | +6 | 12 |
8. Skallagrímur | 8 | 2 | 0 | 6 | 15 - 17 | -2 | 6 |
9. KFS | 9 | 2 | 0 | 7 | 23 - 29 | -6 | 6 |
10. RB | 9 | 1 | 1 | 7 | 12 - 44 | -32 | 4 |
Athugasemdir