Everton hefur áhuga á því að fá Jaden Philogene, leikmann Hull City, í þessum glugga.
Philogene er 22 ára gamall vængmaður sem kemur úr akademíu Aston Villa.
Hann lék alls sex leiki fyrir aðallið Aston Villa áður en hann skipti yfir í Hull fyrir síðasta tímabil. Áður lék hann með Cardiff City og Stoke City á láni frá Villa.
Sky Sports segir Everton komið í baráttuna um þennan efnilega leikmann en Hull vill fá 16 milljónir punda. Hann hefur einnig verið orðaður við Barcelona á Spáni.
Philogene kom að átján mörkum í ensku B-deildinni á síðasta tímabili en hann á 8 leiki og 3 mörk fyrir yngri landslið Englands.
Athugasemdir