Norski leikmaðurinn Jörgen Strand Larsen er á leið til Wolves frá Celta Vigo fyrir 25 milljónir punda en þetta fullyrðir Fabrizio Romano á X í kvöld.
Strand Larsen er 24 ára gamall hægri vængmaður sem fór mikinn í La Liga á síðustu leiktíð.
Hann gerði 13 mörk og gaf 3 stoðsendingar fyrir liðið er það hafnaði í 13. sæti deildarinnar.
Wolves hefur náð samkomulagi við Celta Vigo um kaup á Strand Larsen en félagið greiðir um 25 milljónir punda.
Strand Larsen er á leið í læknisskoðun hjá Úlfunum áður en hann skrifar undir fimm ára samning.
Norski vængmaðurinn á að baki 14 A-landsleiki fyrir Noreg og hefur gert þrjú mörk.
Athugasemdir