Stuttgart er að öllum líkindum að missa framherjann markaóða Serhou Guirassy frá sér í sumar þar sem hann er með lágt riftunarverð og mörg stórlið hafa áhuga.
Guirassy skoraði 30 mörk í 30 leikjum með Stuttgart á síðustu leiktíð, auk þess að gefa þrjár stoðsendingar, og hefur hann helst verið orðaður við Arsenal, Chelsea og Borussia Dortmund.
Stuttgart hefur áhuga á framherja Dortmund til að fylla í skarðið sem Guirassy mun skilja eftir sig. Sá heitir Niclas Füllkrug og hefur gert garðinn frægan sem afar markheppinn framherji þýska landsliðsins, þar sem hann á 13 mörk og 2 stoðsendingar í 19 leikjum.
Fullkrug er 31 árs gamall og á tvö ár eftir af samningi sínum við Dortmund, þar sem hann skoraði 16 mörk og gaf 10 stoðsendingar í 46 leikjum á síðustu leiktíð.
Þar áður var hann hjá Werder Bremen og skoraði 45 mörk í 90 deildarleikjum.
Athugasemdir