Real Madrid vill Enzo og Huijsen - Liverpool, Arsenal og Man Utd hafa áhuga á Gibbs-White - Sane orðaður við Liverpool
   mið 26. október 2022 12:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Endrick varð yngsti markaskorari í sögu Palmeiras
Brasilíska ungstirnið Endrick var á skotskónum síðastliðna nótt þegar lið hans, Palmeiras, vann 1-3 sigur gegn Athletico Paranaense í brasilísku úrvalsdeildinni.

Endrick kom inn af bekknum í hálfleik og gerði sitt fyrsta mark fyrir aðallið Palmeiras í keppnisleik á 70. mínútu.

Hann er yngsti markaskorari í sögu brasilíska félagsins, en hann er 16 ára og 96 daga gamall.

Það hefur verið mikil umfjöllun um þennan strák síðustu mánuði en hann þykir með efnilegri leikmönnum í heimi. Hann gerði nýverið þriggja ára samning við Palmeiras sem gildir til 2025 og er hann með riftunarákvæði í samningnum sem gerir félögum kleift að fá hann fyrir 60 milljónir evra.

Þessi efnilegi leikmaður komst í sviðsljósið á síðasta ári er hann tók þátt í móti fyrir 20 ára leikmenn og yngri.

Hann var yngstur á því móti en tókst samt að vera valinn besti maður mótsins og átti flottasta markið.

Endrick hefur heimsótt félög á borð við Barcelona og Real Madrid en öll stærstu félög Evrópu hafa fylgst með honum síðasta árið.

Brasilíumaðurinn getur ekki formlega gengið til liðs við félög í Evrópu fyrr en hann hefur náð 18 ára aldri.
Athugasemdir
banner
banner
banner