Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   lau 27. júlí 2024 06:00
Fótbolti.net
Heimild: KSÍ 
Líkamlegt ástand dómara mælt í nýrri rannsókn
Elías Ingi og Helgi Mikael eru meðal þeirra sem taka þátt í rannsókninni.
Elías Ingi og Helgi Mikael eru meðal þeirra sem taka þátt í rannsókninni.
Mynd: KSÍ
Gunnar Jarl Jónsso hefur haldið utan um verkefnið KSÍ-megin.
Gunnar Jarl Jónsso hefur haldið utan um verkefnið KSÍ-megin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Að undanförnu hafa farið fram mælingar á líkamlegu ástandi dómara á Íslandi. Í fyrsta hluta verkefnisins var skoðað hvernig KSÍ dómarar takast á við þær líkamlegu kröfur sem gerðar eru til þeirra.

Þetta er hluti rannsóknar sem nær til nítján íslenskra dómara, sem voru metnir út frá ýmsum líkamlegum eiginleikum.

Fjallað er um rannsóknina í frétt á vef KSÍ:



Líkamlegt ástand dómara mælt í nýrri rannsókn
Síðustu mánuði hefur verið í undirbúningi tilraunaverkefni þar sem m.a. hafa farið fram mælingar á líkamlegu ástandi KSÍ-dómara í samstarfi rannsóknaraðila, KSÍ, Háskóla Íslands og fleiri aðila. Mælingarnar fara fram undir stjórn Milos Petrovic, yfirmanns rannsóknarmiðstöðvar íþrótta- og heilsuvísinda við Háskóla Íslands, og Guðbergs K. Jónssonar, forstöðumanns Rannsóknarstofu um mannlegt atferli, Háskóla Íslands, Valgeirs Einarssonar sjúkraþjálfarateymi KSÍ, og hefur Gunnar Jarl Jónsson, fyrrverandi KSÍ/FIFA-dómari og núverandi meðlimur í dómaranefnd KSÍ haldið utan um verkefnið KSÍ-megin.

Verkefnið í heild er talsvert umfangsmeira og snýr að því að setja mælistiku á lýðheilsulegt vægi hreyfingar ýmsum hópum, m.a. eldri iðkendum, og felur í sér mælingar á ýmsum sál-, félags- og líkamlegum þáttum iðkenda, ásamt leiðbeinandi ráðgjöf um áframhaldandi hreyfingu og/eða endurhæfingu.

Markmið fyrsta hluta verkefnisins miðaði að því að greina líkamlegar kröfur og frammistöðusnið KSÍ-dómara, og hvernig þeir takast á við þær líkamlegu kröfur sem gerðar eru til þeirra. Rannsóknin, sem er sú fyrsta sinnar tegundar sem gerð er á Íslandi, náði til 19 íslenskra dómara, sem voru metnir út frá ýmsum líkamlegum eiginleikum.

Niðurstöður gefa til kynna að heilt yfir búa þeir dómarar sem voru mældir yfir „miklum styrk, almennum liðleika og þá sérstaklega í neðri hluta líkamans, sem er nauðsynlegt fyrir hlutverk þeirra á vellinum“. Jafnframt kemur fram í niðurstöðum að mælingarnar veiti „dýrmæta innsýn í líkamlegar kröfur til dómara, og niðurstöðurnar gefa mikilvægar upplýsingar um frekari markvissa þjálfun og þjálfunaráætlanir til að auka frammistöðu dómara, draga úr meiðslahættu, og stuðla að víðtækari skilningi á frammistöðu dómara á efsta þrepi á Íslandi“.
Athugasemdir
banner
banner