Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 27. október 2022 15:35
Elvar Geir Magnússon
Horfðu á Meistaradeildina - Sara og Guðrún byrja
Mynd: Getty Images
Sara Björk Gunnarsdóttir er í byrjunarliði Juventus sem mætir Lyon í Meistaradeild Evrópu klukkan 16:45.

Guðrún Arnardóttir og stöllur í sænska meistaraliðinu Rosengård spila við Barcelona á sama tíma. Guðrún er í byrjunarliðinu.

Klukkan 19:00 mætir Bayern liði Benfica en Glódís Perla Viggósdóttir verður væntanlega í byrjunarliði Bayern. Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru einnig á mála hjá Bayern. Cecilía hefur verið á bekknum í nokkrum leikjum Bayern á tímabilinu en Karólína hefur verið frá vegna meiðsla.

Hægt er að horfa á Meistaradeild kvenna á Youtube:

16:45 Juventus - Lyon


16:45 Rosengard - Barcelona


19:00 Arsenal - Zurich


19:00 SL Benfica - Bayern

Athugasemdir
banner
banner
banner