banner
   fim 27. október 2022 22:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sannfærður um að Ronaldo skori fleiri mörk
Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo skoraði síðasta mark Manchester United í 3-0 sigri liðsins á Sheriff í Evrópudeildinni í kvöld.


Þetta var aðeins þriðja mark hans á tímabilinu en hann var að snúa til baka eftir að hafa verið settur í skammarkrókinn af Erik ten Hag stjóra liðsins fyrir leikinn gegn Chelsea um síðustu helgi.

„Það var frábært að sjá Ronaldo skora. Hann bjó til færi og liðið bjó til færi fyrir hann. Við vitum að hann getur klárað þau. Hann þurfti mark og nú er ég bjartsýnn að það komi fleiri mörk," sagði Ten Hag eftir leikinn í kvöld.

Ronaldo fór sjálfur á Instagram eftir leikinn.

„Frábær liðsheild og góður sigur. Við stöndum saman, áfram United," skrifaði Ronaldo á Instagram.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner