Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. október 2022 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Féllu úr efstu deild en geta tekið þátt í Copa Libertadores
Mynd: Getty Images

Suður-ameríska knattspyrnusambandið, CONMEBOL, hefur staðfest að argentínska félagið Patronato fær þátttökurétt í suður-amerísku Meistaradeildinni takist félaginu að vinna argentínska bikarinn á sunnudaginn.


Patronato féll úr argentínsku deildinni en komst óvænt alla leið í úrslitaleik bikarsins eftir sigur í vítakeppni gegn Boca Juniors í undanúrslitum.

Patronato mætir Talleres í úrslitaleik á sunnudaginn og tryggir sér sæti í Copa Libertadores með sigri. Patronato yrði þá fyrsta félagið í sögunni til að spila í B-deild og taka þátt í Meistaradeildinni.

Takist Patronato að sigra verður einstaklega áhugavert að fylgjast með B-deildarliði spila við bestu lið nágrannaþjóðanna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner