Rúnar Þór Sigurgeirsson, vinstri bakvörður Willem II í Hollandi, er þessa dagana orðaður við þýska félagið Schalke.
Stuðningsmaður þýska félagsins setti inn færslu á X í gærkvöldi. Hann segist hafa heyrt af því að Schalke hafi áhuga á Rúnari. Stuðningsmaðurinn nefnir einnig að Rúnar sé að fylgja Schalke á Instagram. Það eitt og sér hefur svo sem takmarkaða þýðingu.

Rúnar er 24 ára og gekk í raðir Willem II síðasta haust. Hann hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í Eredivisie í vetur en var talsvert á bekknum seinni hluta tímabilsins.
Ef Rúnar færi til Schalke yrði hann annar Íslendingurinn til að spila með liðinu. Guðlaugur Victor Pálsson var þar í eitt tímabil. Schalke endaði í 10. sæti þýsku B-deildarinnar í vetur.
Eine späte Meldung zu S04 - kommt aber vom alten "Schalkeinside" - Schalke soll Interesse an Runar Sigurgeirsson haben.
— Chris Behrendt (@ChrisBehrendt4) June 30, 2024
Er ist Linksverteidiger/LAV und folgt Schalke schon auf Instagram.
Murkin wird dann entweder als LIV eingeplant oder er wird den Verein noch verlassen...
Athugasemdir