Búið er að opna fyrir skráningar í Draumaliðsdeild Domino's, opinberan Draumaliðsdeildarleik Pepsi-deildarinnar í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta. Skráðu þig til leiks á slóðinni dominos.fotbolti.net.
Þetta er þriðja árið í röð sem Draumaliðsdeild Domino's fer fram en deildin er svipuð og Fantasy leikur ensku úrvalsdeildarinnar sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi undanfarin ár.
Nýtt fyrirkomulag
Í ár verður nýtt fyrirkomulag á leiknum en tímabilinu í Pepsi-deildinni verður skipt upp í tvo hluta í Draumaliðsdeildinni. Veitt verða verðlaun fyrir sigurvegara í hvorum hluta og svo verður sigurvegari heildarkeppnarinnar krýndur í lok tímabils.
Leikurinn er nýr og endurbættur á þessu tímabili og verður mun auðveldara að skoða og gera breytingar á sínu liði í snjallsímum og spjaldtölvum.
Verðlaun
Gaman ferðir gefa glæsilega ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum til sigurvegara heildarkeppnar Draumaliðsdeildar Domino's.
Actus gefur öflugan LG G2 snjallsíma fyrir sigurvegara fyrri hluta Draumaliðsdeildarinnar.
Nýherji gefur frábæra Lenovo Yoga fartölvu fyrir sigurvegara seinni hluta Draumaliðsdeildarinnar.
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Hægt er að skrá lið til leiks og gera breytingar á liðinu sínu til klukkan 15:00 sunnudaginn 4. maí þegar fyrsta umferðin fer fram.
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Draumaliðsdeild Domino's er opinber samstarfsaðili Íslensks Toppfótbolta og er starfræktur með leyfi hans.
Athugasemdir