Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. desember 2022 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Kane: Mér finnst ég hafa spilað vel
Harry Kane
Harry Kane
Mynd: EPA
Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, segist hafa spilað vel á HM í Katar, þrátt fyrir að hafa ekki skorað.

Kane hefur spilað sem fremsti maður hjá Englandi á mótinu en ekki enn komið boltanum yfir línuna.

Hann var nokkrum sinnum nálægt því að skora í riðlakeppninni en boltinn vildi ekki inn.

Kane er viss um að það eigi eftir að breytast en hann segist hafa spilað vel til þessa.

„Fyrst og fremst þá er fóturinn í fínu lagi. Hann verður betri með hverjum deginum. Ég er á þeim stað þar sem ég finn eiginlega ekkert fyrir þessu og það er frábært.“

„Ef við tölum um formið þá finnst mér ég hafa spilað vel. Ég verð alltaf dæmdur á mörkunum en ég er mjög yfirvegaður einstaklingur og einbeiti mér að því að gera mitt allra besta fyrir liðið.“

„Það væri auðvitað frábært ef mörkin koma og sem framherji þá vil ég alltaf skora mörk. Sjáum hvernig leikurinn fer í kvöld. Þetta verður erfiður leikur en vonandi tekst mér að skora,“
sagði Kane.

England spilar við Senegal í 16-liða úrslitum mótsins klukkan 19:00 í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner