Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
banner
   fös 18. október 2024 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mazraoui klár þrátt fyrir að vera nýbúinn í aðgerð
Mynd: Man Utd
Noussair Mazraoui er klár í slaginn með Manchester United, getur spilað gegn Brentford á morgun. Þetta kom fram á fréttamannafundi Erik ten Hag, stjóra United, í dag.

Mazraoui fór í smávægilega aðgerð í síðustu viku vegna hjartavandamála. Þá var tekið fram að hann yrði fljótur að ná sér en kannski ekki svona fljótur.

Harry Maguire og Kobbie Mainoo verða ekki með á morgun og sömu sögu er að segja af vinstri bakvörðunum Luke Shaw og Tyrell Malacia. Ten Hag tjáði sig sérkstalega um bakverðina í dag.

„Við getum ekki þvingað þá einhvern veginn til baka. Við þurfum að fara varlega með þá. Við viljum fá þá til baka sem fyrst og við þurfum vinstir bakvörð, svo mikið er víst. En við viljum ekki flýta okkur og missa þá út aftur," sagði sá hollenski.

Malacia hefur ekkert spilað síðan á þar síðaðasta tímabili og Shaw hefur verið fjarri góðu gamni síðan á EM.
Athugasemdir
banner