Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
   fös 18. október 2024 22:22
Brynjar Ingi Erluson
Annað tapið í röð hjá Óttari
Óttar Magnús Karlsson
Óttar Magnús Karlsson
Mynd: SPAL
Víkingurinn Óttar Magnús Karlsson lék allan leikinn í 1-0 tapi Spal gegn Pescara í ítölsku C-deildinni í kvöld.

Óttar og hans menn hafa ekki byrjað tímabilið vel og aðeins unnið þrjá af fyrstu tíu leikjum sínum.

Liðið tapaði öðrum deildarleik sínum í kvöld er það fékk Pescara í heimsókn og lék Óttar allan leikinn í fremstu víglínu.

Andrea Dossena, fyrrum leikmaður Liverpool og Napoli, er þjálfari Óttars í Spal, en hann tók við liðinu í sumar.

Það er farið að hitna verulega undir sæti hans en Spal hefur fjórtán sinnum skipt um þjálfara frá 2020.

Spal er í 18. sæti í B-riðli C-deildarinnar með 7 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner