Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
   fös 18. október 2024 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Leeds í annað sætið - Fyrsta tap Sheffield United
Mateo Joseph skoraði seinna mark Leeds
Mateo Joseph skoraði seinna mark Leeds
Mynd: Getty Images
Leeds 2 - 0 Sheffield Utd
1-0 Pascal Struijk ('69 )
2-0 Mateo Fernandez ('90 )

Leeds United er komið upp í annað sæti ensku B-deildarinnar eftir 2-0 sigur liðsins á Sheffield United á Elland Road í kvöld.

Leedsarar eru á góðu róli í deildinni en liðið hefur ekki tapað leik síðan 14. september.

Fyrir leikinn var haldin sérstök minningarathöfn fyrir George Baldock, fyrrum leikmann Sheffield United, en hann lést aðeins 31 árs að aldri á heimili sínu í Aþenu í síðustu viku.

Largie Ramazani og Brenden Aaronson fengu góð færi til að koma Leeds í forystu í fyrri hálfleiknum, en náðu ekki að nýta og var staðan markalaus þegar gengið var til búningsherbergja.

Sheffield United hafði farið í gegnum ellefu klukkutíma án þess að fá á sig mark eða þangað til Pascal Struijk kom boltanum í netið eftir hornspyrnu.

Varamaðurinn Mateo Joseph tryggði síðan sigurinn undir lokin eftir sendingu Joel Piroe.

Leeds komið upp í annað sætið með 19 stig, eins og Sheffield United, sem var að tapa sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Sunderland 9 6 1 2 18 8 +10 19
2 Leeds 10 5 4 1 17 7 +10 19
3 Sheffield Utd 10 6 3 1 12 5 +7 19
4 Burnley 9 5 3 1 14 4 +10 18
5 West Brom 9 5 2 2 12 6 +6 17
6 Watford 9 5 1 3 14 14 0 16
7 Norwich 9 4 3 2 16 10 +6 15
8 Blackburn 9 4 3 2 15 11 +4 15
9 Middlesbrough 9 4 2 3 10 7 +3 14
10 Oxford United 9 3 3 3 13 11 +2 12
11 Swansea 9 3 3 3 8 6 +2 12
12 Derby County 9 4 0 5 12 12 0 12
13 Hull City 9 3 3 3 12 13 -1 12
14 Plymouth 9 3 2 4 10 13 -3 11
15 Sheff Wed 9 3 2 4 11 15 -4 11
16 Bristol City 9 2 5 2 10 14 -4 11
17 Stoke City 9 3 1 5 10 12 -2 10
18 Millwall 9 2 3 4 12 11 +1 9
19 Preston NE 9 2 3 4 7 12 -5 9
20 Coventry 9 2 2 5 10 13 -3 8
21 Luton 9 2 2 5 8 15 -7 8
22 QPR 9 1 4 4 9 16 -7 7
23 Portsmouth 9 0 5 4 9 20 -11 5
24 Cardiff City 9 1 2 6 4 18 -14 5
Athugasemdir
banner
banner
banner