Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
banner
   fös 18. október 2024 22:16
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Langþráður sigur Valladolid
Leikmenn Real Valladolid fagna sigrinum
Leikmenn Real Valladolid fagna sigrinum
Mynd: EPA
Alaves 2 - 3 Valladolid
1-0 Toni Martinez ('6 )
1-1 Mamadou Sylla ('17 , víti)
1-2 Selim Amallah ('72 , víti)
1-3 Anuar ('76 )
2-3 Kike Garcia ('90 )
Rautt spjald: Kike Garcia, Alaves ('90)

Real Valladolid vann langþráðan sigur í La Liga á Spáni í kvöld er liðið lagði Deportivo Alaves að velli, 3-2, á Mendizorrotza-leikvanginum.

Valladolid hafði aðeins unnið einn deildarleik en það kom í fyrstu umferðinni.

Ekki fór það vel af stað en Toni Martinez, sóknarmaður Alaves, kom heimamönnum í 1-0 á 6. mínútu. Gestirnir jöfnuðu metin úr vítaspyrnu á 17. mínútu.

Valladolid fékk aðra vítaspyrnu á 72. mínútu sem Selim Amallah skoraði úr og bætti Anuar við þriðja markinu fjórum mínútum síðar.

Uppbótartímann var viðburðaríkur fyrir Kike Garcia sem minnkaði muninn í 3-2 áður en hann var rekinn af velli fyrir að fá tvö gul spjöld á tveimur sekúndum. Hann fékk fyrra gula fyrir brot í teig Valladolid og síðara fyrir að hreyta fúkyrðum í átt að dómaranum.

Lokatölur 3-2 fyrir Valladolid sem er með 8 stig í 18. sæti en Alaves í 14. sæti með 10 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 9 8 0 1 28 9 +19 24
2 Real Madrid 9 6 3 0 19 6 +13 21
3 Atletico Madrid 9 4 5 0 13 5 +8 17
4 Villarreal 9 5 2 2 17 17 0 17
5 Osasuna 9 4 3 2 13 14 -1 15
6 Athletic 9 4 2 3 13 10 +3 14
7 Mallorca 9 4 2 3 9 8 +1 14
8 Vallecano 9 3 4 2 11 9 +2 13
9 Celta 9 4 1 4 16 15 +1 13
10 Betis 9 3 3 3 8 8 0 12
11 Girona 9 3 3 3 11 12 -1 12
12 Sevilla 9 3 3 3 9 10 -1 12
13 Espanyol 9 3 1 5 9 13 -4 10
14 Alaves 10 3 1 6 13 18 -5 10
15 Real Sociedad 9 2 3 4 7 8 -1 9
16 Getafe 9 1 5 3 6 7 -1 8
17 Leganes 9 1 5 3 5 9 -4 8
18 Valladolid 10 2 2 6 8 21 -13 8
19 Valencia 9 1 3 5 5 13 -8 6
20 Las Palmas 9 0 3 6 9 17 -8 3
Athugasemdir
banner
banner