Enski vængmaðurinn Noni Madueke hefur svarað fyrir ummæli Rio Ferdinand, sem sagði leikmanninn hafa sýnt óvirðingu er honum var skipt af velli í 1-1 jafntefli Chelsea gegn Arsenal á dögunum.
Madueke var tekinn af velli á 68. mínútu leiksins og sást hlaupa beint í leikmannagöngin og inn í klefa.
Ferdinand gagnrýndi Madueke og sagði hann sýna liðinu og þjálfaranum óvirðingu. Sjálfur hefði hann sektað Madueke um tveggja vikna laun, en vængmaðurinn segir Ferdinand vera að gera úlfalda úr mýflugu.
„Ég bókstaflega í gegnum leikmannagöngin til að fara á klósettið og kom aftur 30 sekúndum síðar. Ef þú horfir á marga leiki þar sem ég hef komið af velli þá fer ég alltaf í leikmannagöngin til að fara á klósettið. Þetta er ekkert stórmál,“ sagði Madueke.
Madueke er fastamaður í liði Chelsea en hann hefur skorað fjögur mörk í tíu deildarleikjum. Hann skoraði þrennu í 6-2 sigrinum á Wolves og eina mark Chelsea í 1-1 jafnteflinu gegn Nottingham Forest.
Athugasemdir