Enska fótboltasambandið hefur staðfest að Rodrigo Bentancur, miðjumaður Tottenham, hafi verið dæmdur í sjö leikja bann.
Ástæðan fyrir banninu eru ummæli sem Bentancur lét falla síðasta sumar um liðsfélaga sinn, Son Heung-min. Úrúgvæskur sjónvarpsmaður bað Bentancur um að gefa sér Tottenham treyju og þá svaraði miðjumaðurinn:

„Viltu treyjuna frá Sonny? Hún gæti líka verið frá frænda hans þar sem þeir líta allir eins út."
Bentancur baðst afsökunar opinberlega og bað hann einnig Son afsökunar persónulega. Son samþykkti afsökunarbeiðnina en hann fer samt sem áður í leikbann enda augljósir kynþáttafordómar.
Enska fótboltasambandið hefur núna staðfest bannið og fær Bentancur að auki 100 þúsund pund í sekt.
Bentancur má spila í Evrópudeildinni en missir af næstu leikjum Spurs í enska boltanum.
Athugasemdir