Taylor Harwood-Bellis, leikmaður Southampton, spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir hönd Englands í gær og skoraði í öruggum 5-0 sigri gegn Írlandi í gær.
Þessi 22 ára gamli varnarmaður kom inn á sem varamaður og negldi síðasta naglann í kistu Íra.
„Þetta er draumurinn. Þetta er það stærsta í fótboltanum, að skora setti punktinn yfir i-ið," sagði Harwood-Bellis.
„Ætlunin var að sýna hvað ég gæti. Ég vildi komast á völlinn og sýna það sem ég gat gert á æfingu."
Athugasemdir