Viktor Gyökeres er búinn að vera ótrúlega öflugur á fyrri hluta tímabils og skoraði hann í sigri Svía gegn Slóvakíu í kvöld.
Gyökeres skoraði og lagði upp í 2-1 sigri sem tryggði Svíum toppsæti riðilsins. Alexander Isak átti einnig mark og stoðsendingu.
„Það var sorglegt að sjá Amorim fara frá Sporting en ég skil þessa ákvörðun. Hann hefur verið ótrúlega mikilvægur fyrir mig, hann gaf mér tækifærið hérna og hafði alltaf trú á mér," sagði Gyökeres eftir sigurinn og var spurður út í framtíðina sína.
„Ég er ekki að hugsa um að skipta um félag, mér líður mjög vel hjá Sporting og ég er ekki að flýta mér að gera neitt. Orðrómar hafa engin áhrif á mig. Ég ætla að klára tímabilið hjá Sporting."
Athugasemdir