Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var í byrjunarliði Leverkusen þegar liðið lagði RB Leipzig í þýsku deildinni í kvöld en hún hefur þurft að sætta sig við að byrja á bekknum í síðustu tveimur leikjum.
Leiknum lauk með 1-0 sigri Leverkusen en þetta var þriðji sigur liðsins í röð.
Leverkusen er í 4. sæti deildarinnar með 23 stig eftir tíu umferðir. Liðið er með jafn mörg stig og Bayern og Frankfurt og aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Wolfsburg.
Næsti leikur liðsins er gegn Postdam í bikarnum en næsti deildarleikur er gegn toppliði Wolfsburg á heimavelli þann 6. desember.
Athugasemdir